Maður handtekinn eftir bílaeftirför

Þá hefur lögreglan lagt upp á grasbala við Sæbraut skammt …
Þá hefur lögreglan lagt upp á grasbala við Sæbraut skammt frá Snorrabraut, bæði bílar og mótorhjól. Ljósmynd/Aðsend

Lögregluaðgerð er nú í gangi á Sæbraut í Reykjavík. Sjónarvottar segja að lagðar hafi verið naglamottur og dekk sé sprungið á svörtum jeppa. Þá hefur lögreglan lagt upp á grasbala við Sæbraut skammt frá Snorrabraut, bæði bílar og mótorhjól. Fram kemur á Vísi að um sé að ræða eftirför lögreglu úr vesturbæ Reykjavíkur.

Lögreglan gat ekki tjáð sig um málið að svo stöddu.

Uppfært 17.23:

Myndbönd af samfélagsmiðlum og frásagnir sjónarvotta segja að svarta jeppanum á myndinni hafi verið ekið austur Sæbrautina með lögreglu á eftir sér. Þegar ökumaður sá viðbúnað lögreglu hafi hann tekið U-beygju og ætlað að keyra vestur Sæbrautina í átt að Hörpu þar sem tókst að stöðva manninn.

Uppfært 18:17:

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu vegna málsins:

„Hætta skapaðist á fimmta tímanum í dag þegar ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu á miðborgarsvæðinu og reyndi að komast undan. Við tók eftirför en maðurinn ók um miðborgina, vestur í bæ og aftur í miðborgina uns hann nam staðar á Sæbrautinni, nálægt Sólfarinu, þegar dekk sprakk á bifreið hans.

Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna málsins, en ökumaðurinn, karlmaður um tvítugt, ók m.a. yfir leyfðum hámarkshraða og gegn einstefnu og setti bæði sjálfan sig og aðra vegfarendur í mikla hættu með þessu framferði. Ökumaðurinn var handtekinn á vettvangi og fluttur á lögreglustöð.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“

Sjónarvottar segja að þegar ökumaðurinn sá viðbúnaðinn hafi hann tekið …
Sjónarvottar segja að þegar ökumaðurinn sá viðbúnaðinn hafi hann tekið U-beygju upp á grasið, sneri við og fór vestur Sæbrautina. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert