Hin árlega harmóníkuhátíð Reykjavíkur fór fram í dag í samstarfi við Árbæjarsafn.
Margir af landsins bestu og þekktustu harmóníkuleikurum komu fram á hátíðinni, sem haldin er í minningu stofnanda hennar, Karls Jónatanssonar harmóníkufrumkvöðuls.
Á sama tíma bauðst gestum að taka þátt í heyönnum líkt og þær tíðkuðust fyrr á tímum. Gafst tækifæri til að komast í kynni við orf, ljá og hrífur.