ON og Reykjavíkurborg bíða enn eftir ákvörðun kærunefndar útboðsmála um frestun réttaráhrifa úrskurðar um ógildingu samnings milli aðilanna tveggja. Kærunefndinni barst einnig ósk um endurupptöku málsins þar sem athugasemdir voru gerðar við forsendur ákvörðunarinnar.
Málið varðar útboð sem Reykjavíkurborg hélt um rekstur hleðslustöðva á nánar tilgreindum bílastæðum víðsvegar um borgina. Orka náttúrunnar bauð best og síðan þá hefur félagið sett upp fjölda stöðva á grundvelli samnings þar um.
Kærunefnd útboðsmála barst kvörtun um útboðið þar sem það var sagt hafa brotið í bága við EES-rétt og fleiri reglur. Kærunefndin féllst á það og hefur ógilt samninginn og gert borginni að greiða sektir. ON hefur síðan þá rofið strauminn til stöðvanna.
Breki Logason, forstöðumaður samskiptasviðs OR, segir Orku náttúrunnar bíða átekta en vonast til þess að úrskurðurinn verði endurskoðaður og þjónusta hleðslustöðvanna hefjist að nýju. Það sé hagur allra að stöðvarnar komist í gagnið.
Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri á skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg, er á sama máli: „Við viljum koma þessu upp sem allra, allra fyrst og fá þetta í notkun. Skyldur sveitarfélagsins eru helst að þjónusta þá sem ekki eiga lóð til að hlaða. Þar þurfum við náttúrlega að byggja upp aðstöðu þannig að þessir aðilar geti farið í orkuskipti, það er það sem við erum að fókusera á með þessum tuttugu stöðvum á ári.“