Fór í öndunarstopp í kjölfar handtöku

mbl.is/Eggert

Maður sem dyraverðir höfðu yfirbugað á hátíðarsvæðinu við Hrísmýri aðfaranótt sunnudags vegna ölvunar og óspekta var handtekinn og færður í fangahús á Selfossi. Vegna ástands mannsins var fylgst sérstaklega með honum. Fljótlega eftir komu í fangahús kastaði hann upp og fór í framhaldi af því í öndunarstopp.   

Frá þessu greinir lögreglan á Suðurlandi.

Hún segir að endurlífgunaraðgerðir hafi þegar verið hafnar af lögreglumönnum og hjúkrunarfræðingi sem staddur var í fangahúsinu vegna annars verkefnis, og komst maðurinn fljótlega til meðvitundar á ný. 

Hann var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík en útskrifaður þaðan, heill heilsu, undir morgun.  

Tilkynnt til nefndar um eftirlit með störfum lögreglu

„Þar sem um alvarlegt atvik er að ræða er málið tilkynnt til nefndar um eftirlit með störfum lögreglu og þess að auki óskað við ríkissaksóknara að hann, eða sá er hann felur málið, taki rannsókn þess yfir. Það er mat þess er þetta ritar að lögreglumenn og nærstaddur hjúkrunarfræðingur hafi, með árvekni sinni og skjótum og fumlausum viðbrögðum, bjargað lífi mannsins,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert