Kórónuveirusmit greindist hjá gesti Bankastræti Club sem sótti staðinn heim um helgina. Hvetur staðurinn gesti sína til þess að fara í sýnatöku.
Bankastræti Club greindi frá þessu á Instagram í dag. Í tilkynningunni segir:
„Upp kom covid smit utan sóttkvíar á skemmtanalífinu um helgina. Við hvetjum alla okkar gesti til þess að fara í sýnatöku þar sem smitið er m.a. rakið inn um okkar dyr. Höldum áfram að vera varkár þrátt fyrir að vera bólusett.“
Uppfært kl. 12.20: Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér tilkynningu þess efnis að annar einstaklingurinn sem greindist smitaður í gær hafi verið á Bankastræti Club um helgina, þ.e. á föstudag og laugardag.
„Við hvetjum alla þá sem komu inn á skemmtistaðinn um helgina að vera vakandi og fylgjast vel með einkennum vegna Covid-19. Ef einkenna verður vart - fara beint í sýnatöku. Hana er hægt að panta inni á Heilsuveru,“ segir í tilkynningu frá almannavarnadeildinni.
„Eins og áður hvetjum við alla til að setja upp Rakningarappið sem hjálpar rakningarteyminu að rekja smit þegar þau koma upp. Rakningarappið er í lykilhlutverki núna þegar samkomutakmarkanir eru engar á Íslandi.“