Endurgera Kolaportið

Aron Einar Gunnarsson með Tristan Þór og Kristbjörg Jónasdóttir með …
Aron Einar Gunnarsson með Tristan Þór og Kristbjörg Jónasdóttir með Alexander. Fyrir framan er eldri bróðir þeirra, Óliver Breki en drengirnir eru allir Malmquist Aronssynir. Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson

Athafnahjónin Aron Einar Gunnarsson og Kristbjörg Jónasdóttir hafa gengið til liðs við fulltrúa Kolaportsins en fram undan er umbreyting þess í Hafnarþorpið.

Með Hafnarþorpinu á að skapa alþjóðlegt markaðstorg með matartorgi og matarmarkaði, auk þess sem Kolaportið verður á sínum stað.

Aron Einar segir í samtali við ViðskiptaMoggann að þau hjónin útiloki ekki frekari fjárfestingu í miðbænum en þau hafa meðal annars fjárfest í hótelrekstri og húðvörum. Ívar Jósafatsson kemur að Hafnarþorpinu en hann hefur m.a. starfað með Cristiano Ronaldo.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert