Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno og starfsmaður Twitter, greinir frá því að hann hyggist borga allan málskostnað þeirra sem kærðir verða og/eða dæmdir vegna ásakana í garð Ingólfs Þórarinssonar um kynferðisofbeldi og kynferðislega áreitni.
Fram kom í gær að Ingólfur hefði sent út fimm kröfubréf vegna málsins, en Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður gætir hagsmuna hans í málinu.
Áður hafði Haraldur lofað því að greiða lögfræðikostnað þeirra sem Ingólfur kann að lögsækja, en tók í dag allan vafa af um að hann myndi einnig hlaupa undir bagga varðandi miskabætur, verði kveðið á um þær.
Kristlín Dís Ingilínardóttir, blaðamaður Fréttablaðsins, greindi frá því í dag að Ingólfur hefði krafist þriggja milljóna króna í miskabætur sem skyldi greiða fyrir 19. júlí.
Haraldur segist í færslu sinni á Twitter undrandi á viðbrögðunum við upprunalegu færslunni. Hann segir athyglina frekar eiga að beinast að þolendum en honum sjálfum og hefur þess vegna ekki veitt viðtöl í dag.
Ok. Ég bjóst ekki við að þetta myndi fá svona mikla athygli.
— Halli (@iamharaldur) July 14, 2021
Ég vil ekki fara í viðtöl út af þessu máli. Fókusinn á að vera á þolendum.
En til að taka af allan vafa: ég borga lögfræðikostnað og miskabætur fyrir öll sem leita til mín sem verða kærð og/eða dæmd í þessu máli. https://t.co/pVz58NXCNd