Minningarskildi um fjallgöngumanninn John Snorra Sigurjónsson verður komið fyrir á sérstakri minnisvörðu á fjallinu K2.
Lína Móey Bjarnadóttir, eiginkona Johns Snorra, lét útbúa minningarskjöldinn og Elia Saikaly hyggst koma honum á Gilkey-minnisvörðuna, sem er sérstök varða þar sem minning þeirra sem farist hafa á fjallinu er varðveitt.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Saikaly birti mynd af sér með skjöldinn á Facebook-síðu sinni. Hann var í för með John Snorra og Pakistönunum Ali Sadpara og Sajid Ali Sadpara þegar þeir lögðu af stað á K2 í febrúar.
Saikaly er nú aftur að ganga á fjallið og vonast til þess að hann muni, ásamt þeim sem með honum fara, geta veitt fjölskyldum hinna látnu svör.
„Andi Johns er alltumlykjandi. Hann lifir áfram í fólki sem hann hafði djúpstæð jákvæð áhrif á hér í Pakistan,“ skrifar Saikaly m.a. í færslunni á Facebook.