Enn er óljóst hvenær eða hvort laumufarþegarnir fjórir sem voru um borð í súrálsskipinu sem kom til hafnar í Straumsvík 8. júlí verði sendir úr landi, að sögn Jóhanns Karls Þórissonar aðstoðaryfirlögregluþjóns.
Laumufarþegarnir koma upprunalega frá Gíneu og tala bara frönsku en lögreglan hefur átt samskipti við þá með aðstoð túlks. Fóru þeir um borð í skipið í Senegal og voru uppgötvaðir af skipverjum á fjórða degi.
Skipið sigldi fyrst til Brasilíu en mönnunum var ekki hleypt úr skipinu og inn til landsins þar. Þeir dvöldu því í einni káetu skipsins uns þeir komu að landi á Íslandi.
Að sögn Jóhanns er verið að vinna í því að staðfesta hvaðan laumufarþegarnir eru og svo verður unnið að því að fá ferðaskilríki fyrir þá. Mennirnir eru ekki með skilríki og uppfylla því ekki skilyrði til að dvelja á Íslandi.
„Það tekur einhvern tíma þannig þeir eru á hóteli í bænum á meðan,“ segir hann.
Farþegarnir eru nú í umsjá umboðsmanns sem sér þeim fyrir mat og húsnæði og munu þeir því koma til með að dvelja hér á landi á meðan unnið er í málinu.