Umferðarslys varð fyrir skömmu skammt austan við Námaskarð og má búast við umferðartöfum á næstunni vegna þess. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hefur ekki þurft að grípa til lokana vegna slyssins.
Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá en ekki fást frekari upplýsingar sem stendur um slysið.