Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir á twittersíðu sinni ummæli Runólfs Pálssonar, yfirmanns Covid-19-göngudeildarinnar á Landspítalanum, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld furðuleg.
Þar segir hann meðal annars að sjúklingurinn með Covid-19 sem nú liggur inni á sjúkrahúsi sé ekki mikið veikur og að allt önnur staða sé uppi í dag en í fyrri bylgjum Covid-19.
Sigríður bendir á að í sömu andrá kalli Runólfur eftir að sóttvarnaaðgerðir séu hertar á landamærum Íslands og telur ummælin fela í sér mótsögn.
,,T.d. væri skynsamlegt að krefjast neikvæðrar niðurstöðu úr PCR-prófi við komu til landsins [og/eða] hugsanlega skima … frá hááhættusvæðum, t.d. Íslendinga sem koma til landsins erlendis frá sem eru náttúrulega að koma beint inn í samfélagið.“ #frelsiðtapastsjaldnastalltieinu
— Sigríður Á. Andersen (@siggaandersen) July 18, 2021
Ég tek það fram að mér hefur þótt Runólfur hallast að skynseminni frá upphafi þessa faraldurs. Þessi ummæli núna hljóma furðulegri fyrir vikið. #ekkigerabaraeitthvað
— Sigríður Á. Andersen (@siggaandersen) July 18, 2021