Sextán greindust innanlands með kórónuveiruna í gær. Sex voru í sóttkví við greiningu.
Einn greindist með kórónuveiruna á landamærunum, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum. Ekki er enn vitað hvert hlutfall bólusettra í tölum gærdagsins er.
Alls eru nú 385 í sóttkví og 124 í einangrun.