Ekki er þörf á að taka ákvarðanir um auglýsingasamning Weetabix við Gylfa Þór Sigurðsson knattspyrnumann, þar sem nú þegar hafði verið ákveðið að einhver annar íþróttamaður kæmi í hans stað sem andlit morgunkornsframleiðandans.
„Við höfum starfað með Gylfa, en það er engin herferð með honum í gangi núna,“ segir Jón Mikael Jónasson, framkvæmdastjóri Danóls, innflutningsaðila Weetabix á Íslandi, við mbl.is.
Gylfi Þór er grunaður um að hafa brotið gegn barni og eru lögregluyfirvöld í Englandi með mál hans til rannsóknar.
Fyrr í dag var allt markaðsefni drykkjarins State Energy, sem skartaði Gylfa Þór, fjarlægt úr verslum Hagkaupa.
Jón Mikael segir að hugmyndavinna hafi farið af stað um að næsta auglýsingaherferð Weetabix muni tengjast Evrópukeppni kvennalandsliða í knattspyrnu á næsta ári, þar sem íslenska kvennalandsliðið mun etja kappi.
„Ég veit til þess að það hefur verið hugmyndavinna í gangi í kringum Evrópukeppni kvenna á næsta ári.“