Af þeim 223 sem sitja nú í einangrun eru 100 á aldrinum 18-29 ára. Þetta kemur fram á upplýsingavefnum covid.is, en hlutfallslega skipar sá aldurshópur því 44% af þeim sem hafa verið settir í einangrun.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur staðfest að flest smitanna tengist annars vegar skemmtistöðum í Bankastræti og hins vegar Lundúnaferð hóps ungmenna. Það gæti skýrt hvers vegna samþjöppun í aldursdreifingu einangraðra sé svo mikil.
Í ljósi vaxandi fjölda smita síðustu daga hefur verið kallað eftir takmörkunum á opnunartíma skemmtistaða og banni við útihátíðum á borð við Þjóðhátíð. Þar sé meiri hætta en annars staðar á hópsmiti, sér í lagi meðal yngra fólks.
Í samtali við mbl.is sagði Þórólfur slíkar takmarkanir til umræðu: „Á stað eins og Þjóðhátíð getur einn einstaklingur fengið ansi mikið og útbreitt smit eftir eina helgi sem væri mjög erfitt að eiga við. Við gætum fengið hundruð og þúsundir smita eftir slíkt.“