Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er sagður neita harðlega þeim ásökunum sem á hann hafa verið bornar.
Götublaðið The Sun nafngreinir þó ekki Gylfa í grein sinni. Everton hefur sett leikmann í bann vegna lögreglurannsóknar en félagið hefur ekki nefnt leikmanninn á nafn. Samkvæmt heimildum mbl.is er leikmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, vildi ekkert tjá sig um málið við mbl.is í morgun.
Fram kom í samtali við framkvæmdastjóra KSÍ í gær að sambandið myndi ekki tjá sig um mál Gylfa fyrr en það hefði fengið það formlega staðfest að um íslenskan leikmann væri að ræða.