78 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. Nítján voru í sóttkví við greiningu og 59 utan sóttkvíar.
Ekkert smit greindist við landamæraskimun.
69 greindust í einkennasýnatöku og níu við sóttkvíar- og handahófsskimanir. Af þeim sem greindust í gær voru 52 fullbólusettir. Bólusetning var hafin hjá fimm og átján voru óbólusettir.
Alls eru nú 287 í einangrun og 723 í sóttkví.
2.296 sýni voru tekin við einkannasýntatöku í gær, 435 sýni voru tekin á landamærunum og 946 sýni voru tekin við sóttkvíar- og handahófsskimanir.
Í fyrradag greindust 56 smit innanlands sem var mesti fjöldi smita sem greinst hefur á árinu. 18 voru í sóttkví við greiningu og 43 fullbólusettir.
Fréttin hefur verið uppfærð.