„Síðustu daga þá höfum við sett stopp á þá liði undirbúningsins sem bera með sér mikinn kostnað, til þess að reyna að takmarka skaðann,“ segir Ásgeir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Innipúkans, hátíðar sem fram á að fara í miðborg Reykjavíkur um verslunarmannahelgina.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir tilkynnti í morgun að hann hygðist leggja til aðgerðir innanlands til að hamla útbreiðslu kórónuveirunnar. Búist er við því að ríkisstjórnin taki afstöðu til minnisblaðs Þórólfs á morgun.
„Við þurftum að aflýsa hátíðinni með dags fyrirvara á síðasta ári, þannig að núna höfum við þá alla vega nokkra daga ef þetta fer á versta veg.“
Þórólfur hefur sagt að eftir viðburði á borð við Þjóðhátíð og aðrar útihátíðir, þar sem þúsundir koma saman, gætu greinst hundruð eða þúsundir kórónuveirusmita.
Hann segir ekki þurfa nema einn smitaðan einstakling til þess að koma af stað ansi mikilli útbreiðslu veirunnar á slíkum viðburðum.
„Við vitum jafn lítið og aðrir hvað sóttvarnalæknir hyggst leggja til, hvort þetta tengist jafnvel bara afgreiðslutímum eða hvort þetta séu fjöldatakmarkanir á samkomum eða hvernig það verður,“ segir Ásgeir.
„Við erum bara upplitsdjarfir og bjartsýnir og tökum því sem kemur bara beint á kassann, eins og öllu saman.“