Tímamót urðu í byggingu á nýjum Landspítala í dag þegar fyrsta veggjasteypa á nýjum meðferðarkjarna var steypt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá NLSH, sem sér um umsjón og stýringu byggingar nýs Landspítala.
Að sögn Ólafs Birgissonar hjá NLSH er um að ræða útvegg í kjallara á móts við Barnaspítala Hringsins. Í vegghlutann fóru um 70 rúmmetrar af steypu.