Sóttvarnaráðstafanir verða hertar frá og með miðnætti á morgun. 200 manna samkomutakmarkanir verða settar á ásamt eins metra fjarlægðarreglu. Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fyrir utan Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum að loknum ríkisstjórnarfundi rétt í þessu.
Þá verður afgreiðslutími bara og veitingastaða styttur. Þeir verða opnir til miðnættis en hætt verður að afgreiða vín kl. 23.
Katrín sagði að horft hefði verið til þess að mikilvægt væri að halda smitfjölda niðri. Bæði fyrir samfélagið og heilsu okkar allra en einnig svo Ísland færi ekki á rauðan lista.
Þá sagði Katrín að takmarkanirnar kæmu til með að gilda til 13. ágúst.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði fram minnisblað með tillögum að sóttvarnaaðgerðum næstu vikna í gær. Þeim mun að mestu hafa verið fylgt en sóttvarnalæknir lagði þó til eins og tveggja metra fjarlægðarreglu eftir atvikum.
Fjórar vikur eru síðan öllum takmörkunum var aflétt innanlands.
Fréttin hefur verið uppfærð.