Runólfur Pálsson, læknir og einn af yfirmönnum Covid-göngudeildar Landspítala, segir nú 15 af þeim 544 sem sæta einangrun vegna smits af Covid 19 gulmerkta og einn rauðmerktan. Þeir þrír sem liggja inni á spítala eru ekki inni í þessum tölum. Þannig eru 97% smitaðra enn með lítil eða engin einkenni.
Það þýðir að 528 eru með væg eða lítil einkenni en 15 með aukin og svæsnari. Þá er einn með mikil einkenni.
Runólfur segir litakóðun sjúklinga breytast hratt og tölurnar hækki og lækki á hverjum degi: „Grænlitaðir geta breyst í gula ef hitinn hækkar verulega. Við fylgjumst meira með þeim. Þetta byggist allt á þeirri þekkingu sem þau hafa aflað fyrr í faraldrinum.“
Hann segir eðli veikinda bólusettra skýrast betur á næstu vikum: „Við erum með 40 til 50 einstaklinga í háum áhættuflokki í eftirliti. Fyrr í faraldrinum var það ekki fyrr en eftir fleiri daga sem þeir byrjuðu að finna fyrir einkennum. Næstu tvær vikur mun þetta skýrast betur varðandi fólk í áhættuhópum.“