Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, sagðist á upplýsingafundi Almannavarna eiga erfitt með að svara því hvers vegna fólk hrópar ókvæðisorð að fólki að ósekju.
Þetta sagði hún spurð út í atvik við Suðurlandsbraut í morgun þegar kona var handtekin þar sem þungaðar konur biðu í röð eftir því að komast í bólusetningu.
„Þið eruð að drepa börnin okkar,“ er á meðal þess sem konan mun hafa sagt viðstöddum.
Kamilla sagði ófrískar konur vera að leitast við að verja bæði sig og ófædd börnin sín gegn smiti. Ef kona smitist seint á meðgöngu sé hætt við því að barnið smitist líka.
„Ég hvet þær til að halda sínu striki og vonast til að fleiri fylgi þeirra fordæmi,“ sagði hún og bætti við: „Hvað á maður að segja við fólk sem segir svona? Ég á ekki svör við því.“