Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður er ekki lengur lögmaður Ingólfs Þórarinssonar tónlistarmanns.
Þetta staðfestir Vilhjálmur við mbl.is, en Fréttablaðið greinir frá því að um sameiginlega ákvörðun þeirra hafi verið að ræða.
Vilhjálmur sendi fyrr í mánuðinum sex kröfubréf fyrir hönd Ingólfs vegna ásakana um kynferðisofbeldi á hendur tónlistarmanninum. Þau Silja Björk Björnsdóttir rithöfundur, Erla Dóra Magnúsdóttir og Kristlín Dís Ingilínardóttir blaðamenn, Edda Falak íþróttakona og áhrifavaldur, Ólöf Tara Harðardóttir, einkaþjálfari og liðsmaður Öfga, og Sindri Þór Hilmars- og Sigríðarson markaðsstjóri fengu kröfubréfin. Kröfurnar nema samtals 14 milljónum króna.