Fyrsti brekkusöngurinn með tóma brekku

Magnús Kjartan Eyjólfsson mun stýra brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Eyjum.
Magnús Kjartan Eyjólfsson mun stýra brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Eyjum. Ljósmynd/Hafsteinn Snær Þorsteinsson

Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins frá Selfossi, mun í dag stýra brekkusöngnum fræga af stóra sviðinu í Herjólfsdal.

Brekkusöngurinn í ár tók óvænta stefnu fyrir rúmri viku þegar tilkynnt var tvö hundruð manna samkomubann og Þjóðhátíð frestað í kjölfarið. Magnús hefur komið fram á Þjóðhátíð óslitið síðan 2016 en þetta mun vera frumraun hans í að stýra brekkusöng á þessum skala.

Erfitt að lýsa tilfinningunni

„Jú, ég hef verið að gera þetta síðustu 20 árin með hléum. Hef haft þetta að atvinnu allavega síðustu 10 árin,“ segir Magnús en hann hefur verið í Stuðlabandinu síðan 2010.

Fyrir það spilaði hann bæði sem trúbador auk þess sem hann var með kántríbandinu Klaufum.

Magnús segist spenntur fyrir söngnum í kvöld, enda um að ræða stærsta „trúbadoragigg“ landsins. „Fyrir mann sem er einn með kassagítar held ég að það verði ekki mikið stærra en þetta.“ Þó sé erfitt að lýsa tilfinningunni. „Þetta er náttúrlega stórskrítið, að vera með brekkusöng fyrir framan tóma brekku. Ég er svona að spá hvort ég fái viðbrögð frá álfum og huldufólki,“ segir Magnús glettinn.

Hvort það hafi verið áfall þegar samkomutakmarkanir voru boðaðar svarar hann: „Það er ekkert hægt að neita því en maður hafði svo sem búist við þessu. Maður sýnir því skilning.“

Spurður hvort hann sé opinn fyrir að halda áfram brekkusöngnum eftir þessa undarlegu frumraun jánkar Magnús því. „Ég er alveg opinn fyrir því. Ég hef stjórnað brekkusöng áður, þó ekki í þessari brekku,“ segir Magnús og á þar við sumarhátíðina Sumar á Selfossi en þar hefur hann verið með brekkusöng, sem þó er ekki í eiginlegri brekku. „Það er kallað sléttusöngur af því að það eru engar brekkur á Selfossi,“ segir hann og bætir við: „Ég er vanur því þannig séð en það er ekki hægt að líkja neinum öðrum aðstæðum við þessar í Herjólfsdal; með brekkuna og allt fyrir framan sig. Við getum sagt brekkusöngur-inn með greini um þennan í Herjólfsdalnum. Og ég væri alveg til í að fá að stýra honum með fólk fyrir framan mig. Allavega einu sinni,“ segir Magnús.

Útsendingin hefst í kvöld klukkan 20:30. Fyrst spilar Albatross ásamt góðum gestum. Brekkusöngurinn sjálfur hefst síðan klukkan 23. Hægt er að fá miða á tónleikana í beinu streymi á tix.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka