Steinar Ingi Kolbeins
Nokkuð vel gekk að bólusetja á Suðurlandsbraut í dag, en starfsmenn skóla sem bólusettir voru með Janssen fengu svokallaðan örvunarskammt af bóluefni. Um er að ræða starfsmenn sem eru fæddir í janúar og febrúar.
„Þetta hefur gengið ágætlega hjá okkur í dag. Það komu um tólf hundruð manns til okkar í dag og fengu bólusetningu,“ segir Margrét Héðinsdóttir, verkefnastjóri bólusetninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hún segir mikið hafa verið að gera í dag en það vegi líka þungt í því að tveir mánuðir voru undir í bólusetningu starfsmanna skóla í dag. Á morgun verður starfsfólk skóla, sem fæddist í mars, bólusett með örvunarskammti.
Gerir þú þá ráð fyrir því að það verði minna að gera á morgun?
„Nei, ekkert endilega, það er líka bara margt fólk að koma sem er ekki í þessum hópi. Til dæmis fólk sem á eftir að láta bólusetja sig og námsmenn sem eru að fara í nám erlendis og geta því ekki beðið fram í þriðju viku mánaðarins.“
Hún segir að bólusett verði áfram á Suðurlandsbraut fram í þriðju viku mánaðarins. Þá verði starfsemin færð yfir í Laugardalshöll. Fyrir liggur að boðaðir verði í örvunarskammt, í þriðju viku ágúst, allir þeir sem fengu bóluefni Janssen nú í vor og sumar.