Hildigunnur nýr forstjóri SAk

Hildigunnur Svavarsdóttir hefur verið skipuð nýr forstjóri sjúkrahússins á Akureyri.
Hildigunnur Svavarsdóttir hefur verið skipuð nýr forstjóri sjúkrahússins á Akureyri. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Hildigunnur Svavarsdóttir hefur verið skipuð í starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri var auglýst þann 25. júní og voru sjö umsækjendur um embættið. Í framhaldi af álitsgerðar hæfnisnefndar ákvað Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, að skipa Hildigunni Svavarsdóttur í embættið til fimm ára.

Hildigunnur hefur BS próf í hjúkrunarfræði  frá Háskólanum á Akureyri og MS próf í heilbrigðisvísindum frá Glasgow Caledonian háskóla.

Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að Hildigunnur hafi yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviði heilbrigðisþjónustu ásamt víðtækri reynslu á sviði stjórnunar. Hún hefur verið framkvæmdastjóri hjúkrunar á SAk frá árinu 2012 ásamt því að vera klínískur framkvæmdastjóri á bráða- og þróunarsviði frá sama ári. Í störfum sínum sem framkvæmdastjóri hefur Hildigunnar öðlast víðtæka reynslu af rekstri og stjórnun svo og mannauðsstjórnun.

Hún var forstöðumaður deildar kennslu, vísinda og gæða á SAk um tíu ára skeið, sem framkvæmdastjóri og forstöðumaður tók Hildigunnur mjög virkan þátt í uppbyggingu gæðastarfs sem síðan leiddi til alþjóðlegrar gæðavottunar á SAk. Þá hefur hún verið virk í stefnumótun bæði innan hjúkrunar og fyrir SAk í heild sinni. Hún var skólastjóri Sjúkraflutningaskólans um í tíu ár og átti ríkan þátt í því að nám sjúkraflutningamanna fluttist á landsbyggðina. Hildigunnur var formaður Landssambands heilbrigðisstofnana í þrjú ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert