Ekki hægt að treysta áfram á sjálfsfórnir

Landspítali háskólasjúkrahús Í Fossvogi
Landspítali háskólasjúkrahús Í Fossvogi Ómar Óskarsson

Læknaráð Landspítalans skorar á stjórnvöld að tryggja að viðbrögð við faraldrinum verði áfram byggð á tryggri leiðsögn sóttvarnarlæknis og á vísindalegum grunni. Ekki sé hægt að treysta eingöngu á áframhaldandi sjálfsfórnir og elju útkeyrðs heilbrigðisstarfsfólks sem ekki getur hlaupið frá skyldum sínum.

Þetta kemur fram í ályktun læknaráðsins og er henni beint til heilbrigðisráðherra. 

Árum saman og ítrekað hafi heilbrigðisstarfsfólk bent á þá þröngu stöðu sem Landspítalinn er í. „Bent hefur verið á að ýmsar einingar spítalans starfi undir öryggismörkum, að rúmanýting sé allt of há, gjörgæslupláss of fá, að ekki sé borð fyrir báru komi til alvarlegra atvika í samfélaginu, hvað þá ef komi til heimsfaraldurs.“

Beðin um að hætta að tala spítalann niður

Í tilkynningunni segir að starfsfólk hafi verið beðið að hætta að tala spítalann niður en fátt hafi þó verið um lausnir eða raunverulegar úrbætur.

Ástandið hafi eingöngu versnað. Minnt er á neyðarkall frá læknum á bráðamóttöku sem barst fyrr í sumar. Læknar þar telja sig ekki geta tryggt öryggi sjúklinga við núverandi aðstæður.

„Fleiri deildir upplifa einnig manneklu og mikil þreyta er meðal starfsmanna eftir langvarandi álag undanfarinna missera. Þúsund læknar stigu fram í byrjun sumars með áskorun til heilbrigðisyfirvalda um að grípa í taumana, en enn sem komið er ber lítið á viðbrögðum við því ákalli.“ 

Fórnir skuli metnar að verðleikum

Læknaráð skorar nú á stjórnvöld að sýna í verki að þær fórnir sem starfsfólk spítalans hefur fært í yfirstandandi faraldri séu metnar að verðleikum og að styrkum stoðum verði rennt undir spítalann og heilbrigðiskerfið allt til framtíðar.

„Nú verður því ekki lengur frestað að stórauka fjárframlög til heilbrigðiskerfisins, enda eru þau hlutfallslega lægri hérlendis en í helstu samanburðarlöndum, og reisa það við þannig að við þurfum ekki að upplifa trekk í trekk að neyðarástand bresti á á spítalanum. Eins verður að bregðast strax við útskriftavanda spítalans með varanlegum kerfisbreytingum. Fjölgun biðrýma innan vébanda spítalans er ekki heppilegt skref á þeirri vegferð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert