Fjölga gjörgæslurýmum

Landspítali er nú á hættustigi.
Landspítali er nú á hættustigi. Ljósmynd/Landspítalinn

Heilbrigðisráðuneytið, í samvinnu við Landspítala, heilbrigðisstofnanir og fleiri aðila, vinnur nú að ýmsum aðgerðum sem miða að því að styðja við spítalann. Meðal annars að styrkja getu hans til að takast á við kórónuveirufaraldurinn og sinna annarri mikilvægri þjónustu við sjúklinga.

Frá þessu er greint í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Segir þar að ráðuneytið hafi fengið til starfa tímabundið Vilborgu Hauksdóttur, fyrrverandi skrifstofustjóra í ráðuneytinu, til að liðsinna við áætlanir  og framkvæmd þessara aðgerða í samvinnu við hlutaðeigandi stjórnendur og ábyrgðaraðila. 

Vilborg Þ. Hauksdóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu.
Vilborg Þ. Hauksdóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu.

Styrkja tækjabúnað og innviði

Aðgerðirnar sem um ræðir lúta meðal annars að því að fjölga gjörgæslurýmum á Landspítala og vinna að tilfærslu verkefna milli heilbrigðisstétta innan stofnana til að jafna vinnuálag eftir því sem kostur er. Einnig verður unnið að því að styrkja tækjabúnað og aðra innviði á Landspítala. Að einhverju leyti er um að ræða útfærslu verkefna sem lögð voru til í skýrslu átakshóps frá liðnu ári, um aðgerðir til að létta álagi af bráðadeild Landspítala en Vilborg leiddi þá vinnu átakshópsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert