Funda um aðgerðir, bólusetningar og skólastarf

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á leið á ríkisstjórnarfund í Grindavík í …
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á leið á ríkisstjórnarfund í Grindavík í morgun. mbl.is/Unnur Karen

Ríkisstjórnin fundar nú um aðgerðir innanlands, fyrirkomulag á skólastarfi og bólusetningar.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist ekki geta tjáð sig að svo stöddu um hvort herða eigi aðgerðir eður ei.

Ríkisstjórnarfundurinn hófst klukkan 10 í morgun í Salthúsinu í Grindavík.

Ríkisstjórnin mun einnig eiga þar fund með fulltrúum sveitarfélaga innan sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Vinnufundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn í Duus Safnahúsinu í Reykjanesbæ eftir hádegi. Blaðamannafundur verður þar kl. 16 þar sem farið verður yfir framgang verkefna í stjórnarsáttmála og aðgerðir til að styðja við skapandi greinar kynntar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert