„Ríkisstjórnin er staðráðin í því að draga á langinn þennan faraldur,“ segir Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og vísar til blaðamannafundar ríkisstjórnarinnar sem haldinn var nú síðdegis.
Þar var ákveðið að framlengja núgildandi samkomutakmarkanir og aðrar aðgerðir sem í gildi eru í von um að hamla útbreiðslu kórónuveirunnar.
„Grímuskylda og 200 manna (200!) samkomutakmarkanir í skólum! Af hverju lætur þetta fólk svona?“ spyr Sigríður á Twitter.
Heldur hún áfram:
„Blaðamannafundir ríkisstjórnarinnar í hnotskurn: „Nú verður farið í að greina/skoða/stofna starfshóp/úfæra þvinganirnar.“ Hví er ekki búið að því? Blaðamannafundir eru til að upplýsa mál, ekki til undirbúnings á öðrum fundi.“
Vísar hún einnig til frétta af auknum ótta fólks hér á landi við kórónuveirusmit.
„Ráðherrarnir hafa greinilega ekkert til málanna að leggja annað en að kynda undir ótta og kvíða landsmanna sem fréttir voru fluttar af í dag. Þjóð þarf ekki óvini með svona leiðtoga.“
Ráðherrann fyrrverandi hefur áður gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir aðgerðir sínar í faraldrinum, og þá sérstaklega ráðherra Sjálfstæðisflokksins, fyrir „sorglega frammistöðu í þessu leikriti“.
Ráðherrarnir hafa greinilega ekkert til málanna að leggja annað en að kynda undir ótta og kvíða landsmanna sem fréttir voru fluttar af í dag.
— Sigríður Á. Andersen (@siggaandersen) August 10, 2021
Þjóð þarf ekki óvini með svona leiðtoga.