Minnst 130 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. 91 var utan sóttkvíar við greiningu. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. 32 voru á sjúkrahúsi í gær veikir af Covid-19, þar af átta á gjörgæslu.
14 daga nýgengi innanlands á hverja 100.000 íbúa stendur nú í 421,6. Nýgengið á landamærunum er nú 5,5.
1.842 eru í sóttkví, 1.332 í einangrun og 920 í skimunarsóttkví.
Tæplega fjögur þúsund sýni voru tekin í gær og var hlutfall jákvæðra sýna 4,47%.
Eitt virkt smit greindist í landamæraskimun í gær.
Ekki hefur verið gefið út hversu margir þeirra sem greindust í gær voru bólusettir. Þær tölur verða gefnar út fyrir klukkan 16:00.
Af þeim 119 sem greindust smitaðir á miðvikudag voru 74 bólusettir og 43 óbólusettir. Einn var hálfbólusettur og ekki liggja fyrir upplýsingar um bólusetningarstöðu eins smitaðs einstaklings.
Fréttin hefur verið uppfærð