Minnst 83 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær, þar af 49 utan sóttkvíar. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. 30 voru á sjúkrahúsi í gær veikir af Covid-19, þar af sjö á gjörgæslu. Eitt virkt smit greindist við landamærin.
Ríflega 3.000 sýni voru tekin í gær, flest þeirra, eða um 1.800, voru tekin í einkennasýnatöku. Hlutfall jákvæðra sýna var 3,41%.
14 daga nýgengi innanlands á hverja 100.000 íbúa stendur nú í 402. Nýgengið á landamærunum er nú 5,2.
1.791 er í sóttkví, 1.304 í einangrun og 883 í skimunarsóttkví.
Ekki hefur verið gefið út hversu margir þeirra sem greindust í gær voru bólusettir. Þær tölur verða gefnar út fyrir klukkan 16:00.
Á fimmtudag greindust 130 smit. 85 hinna smituðu voru bólusettir og 37 óbólusettir. Þá var bólusetning hafin hjá fimm manns.
Flestir sem nú eru í einangrun eru á aldrinum 18 til 29 ára. Þeir eru 338 talsins. Næstflestir eru á aldrinum 30 til 39 ára eða 250 manns.
Flest smit eru á höfuðborgarsvæðinu, 872, og næstflest á Suðurlandi, 116. Þá eru reyndar 132 smit óstaðsett. Á Austurlandi eru smitin áberandi fá eða sex talsins. Hið sama má segja um Norðurland vestra þar sem einungis átta virk smit eru staðsett.
Fréttin hefur verið uppfærð