Geta fengið vottorð án örvunarskammts

Beðið eftir bólusetningu.
Beðið eftir bólusetningu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sem stendur er ekki mögulegt fyrir fólk sem hefur fengið örvunarskammta af bóluefni gegn Covid-19 að fá rafræn vottorð með QR-kóða um örvunarskammta. Það er vegna þess að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ekki ákveðið hvernig þær upplýsingar verði settar fram í QR-kóðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni á vef Embættis landlæknis. 

Þeim sem fengu Janssen-bóluefnið í sumar verður boðinn örvunarskammtur af bóluefni Pfizer í næstu viku. Starfsfólk skólakerfisins hefur þegar fengið boð um slíkt og jafnvel fengið sinn skammt. Þá verður fólki í ákveðnum áhættuhópum einnig boðinn örvunarskammtur. 

Geta sótt skírteini

Eins og mbl.is greindi frá fyrr í vikunni tilkynnti heilsugæslan að bólusetningarvottorð þeirra sem þiggja örvunarskammt falli úr gildi í tvær vikur og taki aftur gildi eftir þann tíma, þegar örvunarskammturinn er talinn vera farinn að hafa verndandi áhrif. Þessi staða hefur nú breyst. 

„Rafræn bólusetningavottorð vegna Covid-19 í Heilsuveru eru komin í lag svo þeir sem á þurfa að halda geti sótt sér nýtt skírteini þar sem örvunarskammtur kemur einfaldlega ekki fram. Ekki er hægt að fá rafræn vottorð með QR-kóða um örvunarskammta fyrr en framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið hvernig þær upplýsingar verði settar fram í QR-kóðum,“ segir í tilkynningunni og jafnframt:

„Einstaklingar sem hafa fengið örvunarskammt og eru að yfirgefa landið geta þurft að hafa staðfestingu á báðum skömmtum meðferðis. Þá þarf heilsugæsla að gera hefðbundið bólusetningaskírteini, annaðhvort það sem sóttvarnalæknir gefur út og er notað í almennum bólusetningum hér á landi eða gula bók frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Mælt er með að skrá upplýsingar um við hverju er bólusett, tegund bóluefnis, lotunúmer og dagsetningu til að auðvelda fólki að fá skammta skráða erlendis.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert