Fyrrverandi sambýlismaður Freyju Egilsdóttur Mogensen hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt hana hinn 29. janúar.
Maðurinn, sem er 51 árs, er sakaður um að hafa kyrkt hana áður en hann skar lík hennar í sundur og reyndi að fela það.
Játaði hann brot sín við yfirheyrslu lögreglu eftir að hafa verið handtekinn á heimili sínu. Þar fannst lík hennar einnig illa leikið.
Maðurinn hlaut árið 1996 tíu ára dóm fyrir manndráp á tvítugri barnsmóður sinni þegar sonur þeirra var aðeins tveggja ára. Drápið var framið 23. nóvember árið 1995 en hann stakk konuna átján sinnum með eldhúshníf.
Greint er frá ákærunni í Ekstra Bladet og haft eftir saksóknaranum Jesper Rubow að hann búist við því að maðurinn játi einnig fyrir rétti.