Líklegt að jarðskjálftar tengist niðurrennsli jarðhitavatns

Orka náttúrunnar rekur jarðskjálftamælanet á vinnslusvæðinu til að fylgjast náið …
Orka náttúrunnar rekur jarðskjálftamælanet á vinnslusvæðinu til að fylgjast náið með skjálftavirkni.

Vísindafólk Orku náttúrunnar telur líklegt að röð jarðskjálfta við Húsmúla, vestan undir Hengli, frá því um tíuleytið í gærkvöldi tengist niðurrennsli jarðhitavatns frá Hellisheiðarvirkjun.

Jarðhitavatni sem nýtt er í Hellisheiðarvirkjun hefur síðasta áratuginn verið dælt niður í jörðina aftur eftir að orkan í því hefur verið nýtt í virkjuninni til vinnslu á rafmagni og heitu vatni fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu, að því er segir í tilkyninngu frá ON.

Orka náttúrunnar rekur jarðskjálftamælanet á vinnslusvæðinu til að fylgjast náið með skjálftavirkni. Skjálftarnir hafa engin áhrif haft á rekstur virkjunarinnar, segir ennfremur.

„Orkuvinnsla á Hengilssvæðinu á sér um 30 ára sögu og mikið magn jarðhitavökva er tekið upp úr jarðhitakerfinu og dælt aftur niður eftir nýtingu þess í virkjunum. Ástæða þess að vatninu er dælt niður í jörðina aftur er að það eykur sjálfbærni jarðhitanýtingarinnar og dregur úr umhverfisáhrifum en það er einnig skilyrði í nýtingarleyfi Orkustofnunar.

Dæmi eru um að þegar breytingar hafa verið gerðar á niðurdælingu hafi það valdið smáskjálftavirkni á svæðinu. Engar slíkar breytingar voru í gangi þegar skjálftarnir hófust í gærkvöldi. Engu að síður telur vísindafólk Orku náttúrunnar að skjálftarnir tengist þeim spennubreytingum sem langvarandi niðurdæling veldur og fylgjast því grannt með framvindunni,“ segir ON. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert