Örmagna ferðamönnum komið til bjargar á hálendinu

Björgunarsveitin Þorbjörn hefur haft í nógu að snúast frá því …
Björgunarsveitin Þorbjörn hefur haft í nógu að snúast frá því gosið hófst fyrir fimm mánuðum. Liðsmenn sveitarinnar voru einnig til taks í nótt þegar þeir áttu „frí“ í hálendisferð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík bjargaði seint í nótt sveitin tveimur örmagna ferðamönnum sem höfðu lent í sjálfheldu milli Landmannalauga og Hrafntinnuskers.

„Eftir mikið álag að undanförnu í tengslum við gosið fór sveitin í vikulangt frí upp á hálendi til þess að sinna hálendisvakt björgunarsveitanna en það var ákveðið löngu fyrir eldgosið. Það var um klukkan 21 í gærkvöldi sem fékk sveitin aðstoðarbeiðni frá ferðamönnunum og var strax ákveðið að sækja úr mörgum áttum þar sem stutt var í myrkur. Vel gekk að finna fólkið og koma þeim til bjargar og voru allir komnir niður í Landmannalaugar um klukkan 4 í nótt við þokkalega góða heilsu,“ segir í færslu sem sveitin birti á Facebook-síðu sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert