Reykjavíkurmaraþoninu aflýst

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Mynd úr safni.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Reykjavíkurmaraþoninu í ár hefur verið aflýst.

Í tilkynningu frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur og Íslandsbanka segir að aðstandendur hlaupsins geti ekki tekið þá áhættu að valda auknu álagi á heilbrigðisráðuneytið, almannavarnir, lögreglu, slökkvilið, Reykjavíkurborg og skóla- og íþróttasamfélagið, eftir samtöl við þessa aðila.

Svekkjandi fyrir hlaupasamfélagið

„Það fer mikil vinna í að halda mörg þúsund manna hlaup, en undanfarin ár hafa hátt í 15.000 hlauparar tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Allt hefur verið reynt, en stærsta hindrunin er fjöldatakmarkanir. Það er mjög leiðinlegt að hlaupararnir sem stefndu að góðum árangri í Reykjavíkurmaraþoninu fá ekki keppnishlaupið sitt,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Ara Ferdinandssyni framkvæmdastjóra Íþróttabandalagsins að ákvörðunin sé vissulega svekkjandi fyrir hlaupasamfélagið og góðgerðarfélögin.

„Við getum ekki haldið Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka með færri en 500 í hverju hólfi. Miðað við stöðuna núna og þá óvissu sem er um framhaldið þá lítur ekki út fyrir að fleiri en 100-200 megi koma saman í keppni 18. september. Þetta hefur verið langt ferli og er erfið ákvörðun,“ segir Ari.

Allir skráðir þátttakendur fái gjafabréf sem hægt verði að nota í viðburði á vegum ÍBR.

Geta enn látið gott af sér leiða

Einnig er bent á að þrátt fyrir þetta geti hlauparar látið gott af sér leiða.

„Við höfum sett af stað átakið „Hlauptu þína leið“ þar sem við viljum hvetja hlaupara til að hlaupa sjálfir og styrkja í leiðinni góðgerðarfélag að eigin vali á vefnum hlaupastyrkur.is,“ segir í tilkynningunni.

Í ár hafi safnast um 21 milljón en aðstandendur hlaupsins vilji gjarnan safna meira fyrir góðgerðarfélögin þar sem vitað sé að þetta skipti þau miklu máli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert