Þórhildur Þorkelsdóttir til BHM

Þórhildur hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2020 fyrir fréttaflutning og viðtöl í …
Þórhildur hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2020 fyrir fréttaflutning og viðtöl í tengslum við erfið og oft viðkvæm mál. Ljósmynd/Aðsend

Bandalag háskólamanna - BHM hefur ráðið Þórhildi Þorkelsdóttur sem kynningarfulltrúa bandalagsins. Hún mun sjá um vefsíðu og samfélagsmiðla BHM auk þess að annast samskipti við fjölmiðla, skipulagningu viðburða og fleiri verkefni á sviði kynningarmála. 

Þórhildur hefur meðal annars starfað sem fréttamaður á Stöð 2, Rúv, Vísi og Fréttablaðinu. Hún er fjölmiðlafræðingur að mennt og hlaut blaðamannverðlaunin árið 2020.

Óli Jón Jónsson sinnti áður stöðu kynningarfulltrúa BHM en hann hverfur til annarra starfa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert