Sjúkratryggingar Íslands hafa á síðustu dögum samið um fjölda Covid-tengdra úrræða til að styrkja innviði heilbrigðiskerfisins. Er þetta samkvæmt tilmælum heilbrigðisráðherra í kjölfar þess að ríkisstjórnin fundaði um langtímaviðbúnað og styrkingu innviða vegna faraldursins.
Í tilkynningu segir að meðal annars hefur verið gerður samningur við Reykjalund um að taka við sjúklingum til endurhæfingar frá Landspítala, samningur um farsóttarhús á Akureyri auk þess sem samið hefur verið við Klíníkina um að leggja til aukamannafla fyrir Landspítala.
Öll þessi úrræði eru þegar komin í notkun en í gær var farsóttarhús opnað á Akureyri. Sem fyrr er það Rauði krossinn sem annast rekstur hússins.
Í tilkynningu kemur einnig fram að fleiri samningar séu í vinnslu hjá Sjúkratryggingum með það fyrir augum að gera innviði samfélagsins betur í stakk búna til að takast á við faraldurinn.
Meðal annars sé unnið að samningi um sérstaka Covid deild fyrir aldraða, en slík deild var sett tímabundið á fót fyrr í faraldrinum.