Átta tilkynningar um grun um aukaverkun

Bóluefnið Spikevax við Covid-19 frá lyfjaframleiðandanum Moderna.
Bóluefnið Spikevax við Covid-19 frá lyfjaframleiðandanum Moderna. AFP

Lyfjastofnun hefur samtals borist átta tilkynningar um grun um aukaverkun í kjölfar örvunarbólusetningar með bóluefninu Spikevax frá lyfjaframleiðandanum Moderna.

Þetta kemur fram í svari Lyfjastofnunar við skriflegri fyrirspurn mbl.is. 

Lyfjastofnun hefur ekki borist tilkynning þar sem minnst á suð í eyrum en nokkrar slíkar ábendingar hafa borist mbl.is.

Í sama svari segir að suð í eyrum sé ekki þekkt aukaverkun af bóluefninu Spikevax en upplýsingar um allar þekktar aukaverkanir má lesa í fjórða kafla fylgiseðils lyfsins. 

Tilkynningar alls 2.931

Lyfjastofnun hefur nú alls borist 2.931 tilkynning vegna gruns um aukaverkun í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. Þar af eru 184 alvarlegar.

Á grafinu hér að neðan má sjá yfirlit yfir tilkynningar sem borist hafa Lyfjastofnun vegna gruns um aukaverkun í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert