Virkum Covid-19 smitum hér á landi hefur fækkað um 90 á milli daga.
Í dag eru 1.020 virk smit, þar af eru 244 börn með virkt smit.
Alls liggja nú 24 sjúklingar inni á Landspítala með Covid-19, engir þeirra eru metnir rauðir í áhættumati spítalans en 24 einstaklingar gulir og þurfa nánara eftirlit.
17 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru sjö þeirra óbólusettir.
Þá eru sjö á gjörgæslu og eru þrír óbólusettir. Fimm eru í öndunarvél og eru tveir þeirra óbólusettir.
Meðalaldur innlagðra er 62 ár.
Tölfræði Landspítala frá upphafi þriðju bylgju faraldursins: