Meðaltekjur þeirra átján flugumferðarstjóra sem birtust í tekjublaðinu nú á dögunum eru ein milljón og 738 þúsund krónur á mánuði.
Sá flugumferðarstjóri sem var skráður með hæstar tekjur er með 3.138.000 krónur á mánuði og lægstu mánaðartekjur flugumferðarstjóra sem birtust í blaðinu voru 960 þúsund krónur.
Miðgildið voru 1.569.000 krónur á mánuði.
Nöfn og tekjur átján flugumferðarstjóra voru birtar í Tekjublaðinu 2021. Blaðið birtir árlega áætlaðar mánaðartekjur 4.000 einstaklinga víðs vegar á landinu, byggt á álögðu útsvari eins og það birtist í álagningarskrám.
Á Íslandi eru starfandi 149 flugumferðarstjórar. Starf þeirra felst í þrenns konar flugumferðarstjórn; flugturnsþjónustu, aðflugs- og svæðisflugstjórn í flugstjórnarmiðstöð.
Undanfarið hafa staðið yfir kjaraviðræður milli Félags flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Isavia.
Í gær var fundað í um tólf klukkustundir. Ekkert samkomulag náðist þrátt fyrir það og ætla flugumferðarstjórar því grípa til vinnustöðvunar þann 31. ágúst. Ríkissáttasemjari boðaði ekki til nýs sáttafundar í dag en mun líklega gera það á næstu dögum.
Þess ber að geta að helsta krafa flugumferðarstjóra snýr að vinnutíma en flugumferðarstjórn er vaktavinna.