103 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær.
40 voru í sóttkví við greiningu, eða tæp 39 prósent. 63 greindust utan sóttkvíar.
1.493 eru nú í sóttkví og 872 í skimunarsóttkví og fjölgar í báðum flokkum sóttkvíar.
Átján eru inniliggjandi á sjúkrahúsi með Covid-19. Fjórir eru á gjörgæslu og fækkar um einn. Fjöldi látinna hækkaði um einn svo öruggt er að reikna með að fækkunin stafi af andlátinu.
2749 sýni voru tekin í heildina svo að hlutfall jákvæðra sýna var 3,7 prósent.
Fimm smit greindust við landamæri Íslands.
Þetta kemur fram á covid.is.
Fréttin verður uppfærð.