Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráherra tilkynnti að loknum ríkisstjórnarfundi tilslakanir á sóttvarnaaðgerðum samkvæmt minnisblaði frá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni.
Svandís sagði við blaðamenn fyrir utan ráðherrabústaðinn að sóttvarnalæknir hafi lagt margt til.
- Nýjar reglur taka gildi á laugardaginn 28. ágúst og munu gilda í þrjár vikur.
- Breytingar sem samþykktar voru á ríkisstjórnarfundi rétt í þessu eru:
- Full afköst í líkamsrækt og í sundi, 75% afkastaleyfi afnumið.
- 200 manns mega koma saman á hvers konar æfingum og keppnum í íþróttum og sviðslistum.
- Eins meters regla fellur á sitjandi viðburðum – áfram gildir grímuskylda.
- Leyfilegur hámarksfjöldi gesta á veitingastöðum fer úr 100 í 200 í rými.
- Leyfi til að halda sitjandi viðburði með allt að fimm hundruð manns, án fjarlægðatakmarkana, verða útfærð með notkun hraðprófa.
- Áfram verður 200 manna samkomutakmörk almenn regla og reglur um grímuskyldu haldast óbreyttar.
Svandís og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sögðu við blaðamann mbl.is að skrefin sem nú er verið að taka í tilslökunum á sóttvarnaaðgerðum séu varfærin og í takt við þá stefnu sem lagt var upp með á ríkisstjórnarfundi á Egilsstöðum um temprun smitdreifingar.
Fréttin hefur verið uppfærð.