Enginn lögreglumaður særðist í aðgerðum á Egilsstöðum í gærkvöldi sem enduðu með því að maður var skotinn og særður af lögreglu.
Fram hefur komið í fréttaflutningi af málinu að maðurinn hafi skotið að lögreglu.
Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, staðfesti í samtali við mbl.is að enginn lögreglumaður hafi særst.