Skotmálið á borði héraðssaksóknara

Málið er á borði héraðssaksóknara.
Málið er á borði héraðssaksóknara. mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Rannsókn málsatvika sem endaði með því að maður var skotinn og særður af lögreglu á Egilsstöðum í gærkvöldi er á borði héraðssaksóknara. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu. 

„Starfsmenn héraðssaksóknara og tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu flugu til Egilsstaða strax í gærkvöldi og er rannsókn málsins á frumstigi.

Maðurinn sem særðist var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur en ekki er hægt að gefa frekari upplýsingar um ástand hans að svo stöddu,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert