Stefnumótunarfundur flokksráðs Sjálfstæðisflokksins stendur nú yfir, bæði í Reykjavík og úti um land allt. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins og fjármála- og efnahagsráðherra, ávarpar fundinn klukkan 13:30 og verður ræðu hans streymt hér að neðan.
Í dag fara einnig fram samskonar fundir meðal félagsmanna Vinstri grænna annars vegar og Viðreisnar hins vegar.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, sagði í ávarpi sínu á landsfundi flokksins að hún væri tilbúin til þess að leiða næstu ríkisstjórn.