Steinskip með stefnu á heilaga Jónu

Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að steinskipinu. Hér er …
Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að steinskipinu. Hér er á ferð fólk úr gönguhópi sem vildi sjá fyrirbærið með eigin augum. mbl.is/Jónas Erlendsson

Ekki hafa fundist óyggjandi skýringar á tilurð eða tilgangi bátlaga steins, svokallaðs steinskips, sem bóndinn í Fagradal í Mýrdal fann að nýju í Dalahrauni í landi jarðarinnar fyrr í sumar. Áhugamaður um veru papa á Íslandi hefur fundið út að stefni skipsins snúi að eyjunni Jónu (Iona) á Suðureyjum við Skotland en úr klaustrinu þar hafi írskir eða skoskir munkar komið til Íslands.

Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal, sem fann steinskipið hefur haft í nógu að snúast í sumar. Hann hefur farið sextán ferðir að steinskipinu, yfirleitt með gesti. Í stærsta hópnum voru um þrjátíu manns. Segir hann að fólki þyki það sérstök upplifun að skoða bátinn. Menn séu mikið að spá í það hvernig hægt hafi verið að höggva þetta út úr hörðum steini án nútíma verkfæra. Fram hafa komið ýmsar hugmyndir um tilurð steinsins og tilgang.

Naglfar eða viti?

Tilgáturnar hafa verið allt frá því að þetta hafi verið tæki til að brynna fé eða landamerkjasteinn til þess að vera viti fyrir skipin við ströndina. Í þeirri síðastnefndu hefði holan í steininum verið fyllt af lýsi og ljósið verið mið fyrir skipin, eins konar viti. Jónas telur að kenningin um brynningu fjár falli á því að þar skammt frá renni lækur. Þá er ekki vitað um nein landamerki á þessum stað.

Víra Novytska frá Úkraínu og Sléttan Vasyliev frá Rússlandi helltu …
Víra Novytska frá Úkraínu og Sléttan Vasyliev frá Rússlandi helltu niður dýrindis koníaki við undirbúning athafnar við „altarið“. mbl.is/Jónas Erlendsson

Þórður Tómasson í Skógum telur fund steinskipsins merkasta fornleifafund hér á landi það sem af er 21. öldinni. Hann telur að það tengist Naglfari í Ásatrú 10. aldar á Íslandi. Naglfar var skip sem gert var úr nöglum dauðra manna. Það átti að fljóta í sævargangi í frásögninni um ragnarök. Fleiri kenningar um tengingu við heiðinn sið hafa komið fram. Í gær komu erlendir gestir með þá tilgátu að steinskipið væri fórnaraltari.

Sérfræðingar frá Minjastofnun Íslands rannsökuðu steininn og umhverfi hans í júní. Uggi Ævarsson, minjavörður Suðurlands, segir að til standi að gera frekari rannsóknir á næstunni, vonandi með sérfræðingi í gjóskulögum og aldursgreiningum. Sjálfur efast hann um að hægt verði að tímasetja framkvæmdina, segir að aðstæður séu þannig. Það verði þó reynt. Uggi telur að skipið hljóti að vera manngert.

Leitar til sérfræðinga á Jónu

Björn Pétursson, áhugamaður um veru papa á Íslandi fyrir landnám norrænna manna, hefur athugað stefnu steinskipsins og afstöðu til ýmissa kennileita. Hann segir að staða þess sé engum tilviljunum háð. Bendir á að suðvestur sé hin heilaga átt munkanna og eigi rætur í fornegypskum trúarbrögðum. Reynisdrangar eru í suðvesturátt frá steinskipinu og papakrossinn frægi í Vestmannaeyjum fjær. Þá bendi framendi skipsins og stefnumarkandi steinar fyrir framan það í suðausturátt, beint á klaustur heilags Kólumkilla á eyjunni Jónu (Iona) á Suðureyjum Skotlands. Þaðan hafi írskir og skoskir munkar komið til landsins og þangað hafi þeir væntanlega snúið að dvöl sinni lokinni. Björn hefur sent fyrirspurn til Jónu um hugarheim munkanna og trú með tilliti til steinskipsins og er nú verið að finna sérfræðing til að svara honum. Vonast hann til að fá svör á næstunni, fyrst um staðfestingu á að þessi fornleifafundur geti tengst munkunum, og síðan hvort sérfræðingurinn vilji þá ekki koma til að skoða skipið. Segist Björn munu koma á samskiptum Skotanna við minjavörðinn á Suðurlandi sem fari með málið.

Sjálfur telur Björn, út frá þessum athugunum, líklegast að steinninn sé frá tímum papa hér á landi, fyrir árið 700 og því vel fyrir tíma víkinganna. Hann vill þó hafa fyrirvara um frekari rannsóknir á aldri mannvirkisins og álit sérfræðinga í Skotlandi.

Ekki eru allir sannfærðir um papana. Þórður Tómasson hafnar tengingu steinsins við þá. Hann segir í bréfi til Jónasar að engar sögulegar eða sýnilegar heimildir séu um papabyggð fyrir landnám í Mýrdal, hvað þá um torsótt steinhögg þeirra á Fagradalsheiði.

Uggi Ævarsson fornleifafræðingur telur ekki efni til að útiloka hugmyndir um að steinskipið tengist pöpum, ekki frekar en aðrar kenningar, og vill bíða með frekari ályktanir þar til niðurstöður rannsókna liggja fyrir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert