Tungnaá friðlýst gegn orkuvinnslu

Tungnaá við Bjallarvað.
Tungnaá við Bjallarvað. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu efsta hluta vatnasviðs Tungnaár gegn orkuvinnslu í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun).

Svæðið sem Tungnaá rennur um er ríkt af verðmætum, einkum jarðminjum og víðernum, þar sem athafnir mannsins eru lítt áberandi. Jarðfræðilegur breytileiki er mikill og landslag svæðisins því ákaflega sérstætt og hefur hátt verndargildi, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Nokkur uppistöðulón og virkjanir er að finna neðar í farvegi Tungnaár. Friðlýsingin nær til efsta hluta vatnasviðs Tungnaársvæðisins eða ofan efstu orkumannvirkja sem þegar eru í ánni, þ.e.a.s. ofan Krókslóns.  

Verndarsvæðið er 1086,6 km2 að stærð og nær yfir svæði virkjunarhugmyndanna Bjallavirkjunar og Tungnaárlóns sem eru í verndarflokki rammaáætlunar. Þar sem vatnasvið Tungnaárlóns og hluti af vatnasviði Bjallavirkjunar er friðlýst eitt samfellt svæði sem nær til vatnasviða beggja virkjunarhugmyndanna, að því er segir á vef ráðuneytisins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert