Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir hjúkrunarfræðingnum, sem liggur undir grun vegna andláts á Landspítalanum, hefur verið kærður til Landsréttar. Þetta staðfestir Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sviðsstjóri ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yfir konunni rennur út á morgun en Hulda segir enga kröfu um framlengingu á gæsluvarðhaldinu liggja fyrir á þessari stundu. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, greindi frá því í morgun að konan sætti gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Lögregla greindi frá því í gærmorgun að hún hefði til rannsóknar andlát konu á sextugsaldri sem lést á Landspítalanum fyrr í mánuðinum. Síðar kom í ljós að hjúkrunarfræðingur á geðdeild Landspítalans væri grunaður manndráp.