Kemur Klöru til varnar og segir ÍTF karlaklúbb

Kristrún Heimisdóttir (t.v.) og Klara Bjartmarz (t.h.).
Kristrún Heimisdóttir (t.v.) og Klara Bjartmarz (t.h.). Samsett mynd/Árni Sæberg/Golli

Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur segir Íslenskan toppfótbolta (ÍTF) vera karlaklúbb sem aldrei hafi, svo vitað sé, haft áhyggjur eða áhuga á kyndbundnu ofbeldi né sérstakan áhuga þátttöku kvenna í fótbolta. Hún ber hendi fyrir höfuð Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ), í aðsendri grein á Vísi.

Klara hefur verið ítrekað hvött til að segja starfi sínu lausu undanfarna daga vegna umræðu um kynferðisbrot innan fótboltahreyfingarinnar. Stjórn KSÍ sagði af sér vegna þessa en Klara hefur gefið það út að hún hyggist ekki hætta hjá KSÍ. 

Klara sé femínisti sem berst fyrir minnihlutahópa

Klara var varaformaður Samtakanna 78 þegar stórir sigrar unnust í þeirri baráttu og hefur leitt og fylgt eftir allri uppbyggingu kvennalandsliðanna í þau 27 ár sem hún hefur starfað hjá KSÍ. Hún hefur barist við ómenningu og karlrembu alla tíð,“ skrifar Kristín. 

„[Klara] er feministi, baráttukona fyrir homma, lesbíur og aðra minnihlutahópa og hefur alltaf og mun alltaf beita sér fyrir réttindum og velferð þessara hópa.“

Klara tók við starfi framkvæmdastjóra árið 2015 sem Kristrún segir að hafi verið „stórsigur fyrir kvennaboltann.“

Kvennaknattspyrna jaðarsett hjá ÍTF

Samtökin Íslenskur toppfótbolti (ÍTF) eru á meðal þeirra sem hafa látið sig málið varða. Kristrúnu virðist þykja það kaldhæðnislegt.

Íslenskur toppfótbolti er karlaklúbbur sem hefur aldrei svo vitað sé haft áhyggjur eða áhuga á kynbundnu ofbeldi né sérstakan áhuga þátttöku kvenna í fótbolta, heldur hinu að hagsmunir ríkustu félaganna á Íslandi fái meiri forgang. Einungis stærstu félögin fá að vera innanborðs í ÍTF og kvennaknattspyrna er þar jaðarsett,“ skrifar Kristrún, sem er fyrrverandi knattspyrnukona. Þá hefur hún setið í aðalstjórn KR og stjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Að Íslenskur toppfótbolti grípi tækifæri og nýti krísu til að taka völdin í KSÍ og ná yfirráðum yfir sjónvarpspeningum er ekki vænleg leið til að útrýma eitraðri karlmennsku úr búningsklefum fótboltaheimsins á Íslandi, svo það sé sagt.

Siðvitrar konur hafa vakið KSÍ

Kristrún fagnar þeirri vakningu sem hefur orðið innan KSÍ undanfarið. 

Og nú hafa siðvitrar og sterkar konur vakið KSÍ upp með sparki því það verður að stöðva varanlega og alveg ómenningu ofbeldis og eitraðrar karlmennsku þannig að hún eigi ekki lengur nokkurt skjól innan KSÍ né sé nokkurs staðar hægt að misnota ljóma íslensku landsliðanna til ofbeldis- og myrkraverka,“ skrifar Kristrún og jafnframt:

Framvegis taki KSÍ á öllum slíkum málum af þeirri fyllstu hörku sem þarf til að binda enda þjáningar þolenda. Útrýming gerendameðvirkni er sú áskorun sem KSÍ verður núna að taka til sín og framkvæma í eitt skipti fyrir öll.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert